Maia

Maia

12.12.2006 15:12:27 / maia

Jóla hvað

Stekkjastaur kom fyrstur, 
stinnur eins og tré. 
Hann laumaðist í fjárhúsin 
og lék á bóndans fé. 

Hann vildi sjúga ærnar, 
-þá varð þeim ekki um sel, 
því greyið hafði staurfætur, 
-það gekk nú ekki vel. 

Giljagaur var annar, 
með gráa hausinn sinn. 
-Hann skreið ofan úr gili 
og skaust í fjósið inn. 

Hann faldi sig í básunum 
og froðunni stal, 
meðan fjósakonan átti 
við fjósamanninn tal. 

Stúfur hét sá þriðji, 
stubburinn sá. 
Hann krækti sér í pönnu, 
þegar kostur var á. 

Hann hljóp með hana í burtu 
og hirti agnirnar, 
sem brunnu stundum fastar 
við barminn hér og þar. 

Sá fjórði, Þvörusleikir
var fjarskalega mjór. 
Og ósköp varð hann glaður, 
þegar eldabuskan fór. 

Þá þaut hann eins og elding 
og þvöruna greip, 
og hélt með báðum höndum, 
því hún var stundum sleip. 

Sá fimmti Pottaskefill
var skrítið kuldastrá. 
-Þegar börnin fengu skófir 
hann barði dyrnar á. 

Þau ruku’upp, til að gá að 
hvort gestur væri á ferð. 
Þá flýtti’ ann sér að pottinum 
og fékk sér góðan verð. 

Sá sjötti Askasleikir
var alveg dæmalaus.- 
Hann fram undan rúmunum 
rak sinn ljóta haus. 

Þegar fólkið setti askana 
fyrir kött og hund, 
hann slunginn var að ná þeim 
og sleikja á ýmsa lund.

Sjöundi var Hurðaskellir
-sá var nokkuð klúr, 
ef fólkið vildi í rökkrinu 
fá sér vænan dúr. 

Hann var ekki sérlega 
hnugginn yfir því, 
þó harkalega marraði 
hjörunum í. 

Skyrjarmur, sá áttundi, 
var skelfilegt naut. 
Hann hlemminn o’n af sánum 
með hnefanum braut. 

Svo hámaði hann í sig 
og yfir matnum gein, 
uns stóð hann á blístri 
og stundi og hrein. 

Níundi var Bjúgnakrækir
brögðóttur og snar. 
Hann hentist upp í rjáfrin 
og hnuplaði þar. 

Á eldhúsbita sat hann 
í sóti og reyk 
og át þar hangið bjúga, 
sem engan sveik. 

Tíundi var Gluggagægir
grályndur mann, 
sem laumaðist á skjáinn 
og leit inn um hann. 

Ef eitthvað var þar inni 
álitlegt að sjá, 
hann oftast nær seinna 
í það reyndi að ná. 

Ellefti var Gáttaþefur 
-aldrei fékk sá kvef, 
og hafði þó svo hlálegt 
og heljarstórt nef. 

Hann ilm af laufabrauði 
upp á heiðar fann, 
og léttur, eins og reykur, 
á lyktina rann. 

Ketkrókur, sá tólfti, 
kunni á ýmsu lag.- 
Hann þrammaði í sveitina 
á Þorláksmessudag. 

Hann krækti sér í tutlu, 
þegar kostur var á. 
En stundum reyndist stuttur 
stauturinn hans þá. 

Þrettándi var Kertasníkir
-þá var tíðin köld, 
ef ekki kom hann síðastur 
á aðfangadagskvöld. 

Hann elti litlu börnin, 
sem brostu glöð og fín, 
og trítluðu um bæinn 
með tólgarkertin sín. 


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 19:35:08 / maia

Sjarmi

Fór til tannsa í dag, hef aldrei farið til þessa gaurs áður og VÁ  sá var bara svaka sætur. Skemmti mér konunglega í stólnum nema hvað það er eitt vandamál við svona........það er að sjálfsögðu vonlaust að reyna að heilla svona tannsa. Maður er með fullt af drasli í kjaftinum og getur ekki sagt neinar skemmtisögur og reynt að sína sinn sjarma. Ekki bætir úr skák að maður þarf á ryksugu að halda til að halda slefinu í skefjum.

Fór einnig í IKEA í mikla frostinu sem var hér. Svaka fínt nema ég hefði sennilega þurft að skilja bílinn eftir heima. Þegar ég var að reyna að finna mér bílastæði þá var hellingur af stæðum fyrir fatlaða, ok það sleppur en svo var hellingur fyrir fólk með barnastóla svo ég fór nú að hugsa hvað kemur næst???????? stæði fyrir fjölskyldur, stæði fyrir fólk með gæludýr, stæði fyrir fólk sem á maka og svo lengst upp í sveit stæði fyrir fólk eins og mig. Einstakar manneskjur. Þetta er nánast jafn slæmt og að fara í Bónus sem er alveg jafn glatað þegar maður er einn. Ætla að kaupa cerios já hér er eitt og hálft kíló takk fyrir. á það fram að 2010. Má bjóða ykkur í mat. 8|


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 16:46:41 / maia

Noregur ekki

He he he

Búinn að hanga á Keflavíkurflugvelli í níu klukkutíma og bíða eftir flugi til Noregs sem á endanum var cancelað :^) Maður er orðin frekar þreyttur og geðillur eftir þetta vesen og ekki bætir úr skák að vinnuskipulag þessa stóra flugfélags Icelandair er hreint til skammar. Engar upplýsingar veittar og ef einhverjar upplýsingar voru veittar þá vissi enginn hvort þær voru réttar eða ekki svo það tók ekki nema um þrjá tíma að fá staðfestingu á því hvort eða hvort ekki fluginu væri cancelað. Þegar við sáum svo fram á að ekki væri hægt að ná tengiflugi né seinni vél til Oslo þá var ákveðið að yfirgefa flughöfnina og komast heim. Ekki gekk það hins vegar svo vel, því við vorum að sjálfsögðu stoppaðar í tollinum þar sem við vorum búnar að versla smá varning í fríhöfninni og þar sem við fórum tæknilega ekki úr landi máttum við ekki koma með þetta inn í landið aftur. Svo við urðum að skila varningnum. Ekki gekk það þó betur en svo að þegar við fórum svo í gegnum gegnumlýsingartækið þá var Fanný tekinn. Var hún búinn að kaupa tannkrem, hársprey og einn Cd um morguninn kl 6 þegar við mættum og búinn að stein gleyma því í töskunni. Var ungfrú tollína ekki mjög kát og ætlaði að kæra Fanný fyrir þessi hræðilegu smigl en sem betur fer náðum við nú að róa skvísuna í einkennisbúningnum sem mátti nú alls ekki við því að verða æst þar sem hún blés nógu vel út í gallann sinn. Egóið alveg að fara með hana. En nú rúmum tólf tímum eftir að ég vaknaði í morgun er ég loks kominn heim og ekkert á leið til Norge :cry:  Ég sem var svo farin að hlakka til að dusta rikið af norsku kunnáttunni og sjá hvort maður gæti spjarað e-ð.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 20:39:35 / maia

Noregur

Útlitið er ekki gott. Á flug til Noregs á morgun kl: 7 og var að hlusta á veðurfréttir þar sem er verið að spá versta veðri hér í nær 15 ár og akkurat hér við Faxaflóann á veðrið að standa í hámarki á morgun milli 6-7!!!!! 

Svo það er spurning hvort dagurinn verði frábær á morgun og maður mun þurfa að hanga á flugvellinum í einhvern tíma. Vona svo sannalega ekki.

En hlakka nú smá til að koma aftur til Norge. Hef ekki komið þangað síðan ég flutti þaðan aftur heim á klakkan og eru það um 10 ár. Maður hefur nú verið að hugsa smá á norskunni en gengur það nú ekki svo vel. Nánast búinn að tapa öllu sem maður lærði. Fæ mér bara nokkra bjóra fyrir fundinn með þeim í Toyota og þá kannski þori ég að bulla e-ð á norskunni.

P.s Vona líka að ég lendi ekki í sama klandri og Anna Lilja mín 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 13:57:05 / maia

Betty Crocker

Vó hvað sumir daga geta farið illa í mann. Var svaka dugleg fram að hádegi, fundir og annað, svo núna lít ég út um gluggann á skrifstofunni minni með hendurnar á liklaborðinu og nenni ekki að gera neinn skapaðann hlut. Langar helst að skríða upp í rúm og sofa í þessari rigningu.

Í þessari leti ákvað ég að koma við í söludeildinni, kíkja á barinn og athuga hvort að e-ð gott væri á boðstólnum. Mmmmmm fann nammi. Ekkert smá gott. Í því framhaldi fórum við Jóhanna að ræða kallamálin. Ekki frásögu færandi enn eftir stutta stund áttaði ég mig á því að í dag er ekki neitt að finna annað en Betty Crocker drengi á markaðinum!!!!

Sumar líta agalega vel út og nokkuð bragðgóðar en eftir að maður hefur smakkað á þeim verður maður svektur að hafa fallið fyrir freistingunni. Aðrir líta ekki svo vel út (kemur alltaf upp í huga mér þessi frábæra súkkulaði kaka sem Hulda kom með í kjaftaklúbb til Önnu Lilju) en eru alveg yndislegar þegar þær renna ljúft niður. En það tekur mann langann tíma að leggja til atlögu þar sem áferðin er hreint ekki sú besta. Þriðja er sú sem lítur vel út, hefur verið dekrað við og sinnt af gæfni af bakaranum (móðurinni) þarf ekki að gera neitt sjálf heldur er nánast tilbúinn og kemur þannig beint á markaðinn.

Þegar við höfum fallið fyrir þeirri freistingu þá er agalega erfitt að hlaupa hana af sér, allt of mikið af rotvarnarefnum sem virðast sitja sem fastast á hinum verstu stöðum og skapa eintóm vandræði. En svona er markaðurinn. Eintómir mömmudrengir sem við tökum svo við og reynum að berjast við að ala upp á nýtt eftir okkar höfði og gengur lítið.

Eru konur konum verstar? Höfum við sjálfar verið að koma okkur í þessa stöðu í dag? Ala karlpeninginn upp í aumingjaskap og sitjum í súpunni???

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 15:31:16 / maia

Styttingar

Ekki frásögu færandi að ég var úti ekki fyrir löngu á fundi á vegum vinnunar. Ég væri nú ekki að rabba við ykkur um vinnuna nema hvað mér fannst eitt blað sem ég fékk í hendurnar svona frekar skondið. Svona leit þetta út:

CESO and TRA at TME are working closely together for the implimentation on PDCA, in terms of CCS and N°1. The NMSC training is starting and is based in Kazen and the PDCA principle.

Þetta var nú bara tvær setningar en svona hélt þetta áfram. Ég man bara þegar ég byrjaði fyrst að vinna og var að lesa mér til þá virtist þetta vera óskyljanlegt. Endalaust magn styttinga og spurningin, er þetta ekki að verða svolítið mikið?????


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 15:17:25 / maia

Einn góður

Fjölskyldan sat við matarborðið á sunnudagskvöldi.

 

"Pabbi, hvað eru margar gerðir af kvenmannsbrjóstum til ?"

Spurði sonurinn allt í einu.

"Þær eru þrjár, sonur sæll.

Þegar að konan er á þrítugsaldri eru

brjóst hennar eins og melónur, kringlótt og stinn.

Á fertugs- og fimmtugsaldrinum

eru þau eins og perur, enn falleg er farin að lafa svolítið.

Þegar að konan er komin yfir fimmtugt þá má líkja brjóstum hennar við

lauka." "Lauka ?" "

Já, þú horfir og þú grætur !"

 

Smáþögn.

 

"Mamma, getur þú sagt mér hve margar tegundir ef tippum eru til"

spurði dótturin.

Mamman brosti, leit á eiginmann sinn og sagði:"

Maðurinn gengur í gegnum þrjú stig.

Þegar að hann er á þrítugsaldri er limur hans eins og

eik, öflugur og harður.

Á fertugs- og á fimmtugsaldri er hann eins

og birki, sveigjanlegur en traustur og þegar að hann er kominn yfir

fimmtugt má líkja honum við jólatré!"

" HA, jólatré ?"

" Já hann þornar hratt upp og kúlurnar eru bara til skrauts

p.s það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að það er búið að breyta allri uppsetningu. Maður þarf að læra upp á nýtt að setja inn færslur. Spurning um að vera aðeins duglegri.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 14:30:38 / maia

duglegir drengir

Hann Varði okkar kokkur gerir ekkert annað en að elda svo góðan mat handa okkur í vinnunni að drengirnir okkar eru farnir að gera meir en að slíta bara stólunum, þeir hreinlega hrinja undan þyngdunum.

Það er ekki langt síðan (ár) frá því hér var stofnuð keppni á milli manna hver næði af sér sem flestum aukakílóum yfir ákveðið tímabil. Ekki gekk það betur en svo að drengirnir þyngdust allir á tímabilinu og ekki er verið að tala um grömm heldur voru sumir nánast farnir að slaga í tug kílóa.

Nú eru kapparnir okkar aftur komnir á skrið og ætla að taka þetta með stæl. Mælingar koma inn á síðuna ásamt bollumyndum. Ég hlakka til að fá að fylgjast með þessum rjómabollum, sykurbollum og fitubollum :)

Ef þið hafið áhuga á að kíkja þá er slóðin á hlunkana okkar hér


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 10:14:35 / maia

Mánudagur

Hæ elskurnar

Búið að vera brjálað að gera hjá stelpunni. Vinna, allt á haus, undirbúningur v/íþróttadagsins okkar sem fram fór á laugardaginn og svo stóð maður sveittur í eldhúsinu á föstudaginn að elda mat fyrir stóru systur sem var með þessa fínu 100 manna veislu í HR.

Mitt lið stóð sig með einstakri príði á íþróttamótinu og halaði inn 29 stigum. Til hamingju með það, náðum fjórða sæti, ekki slæmt (af fjórum liðum :$).

Svo koma mamma og pabbi í heimsókn í dag og verða í bænum í viku. Gamla settið að mæta til augnlæknis :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 01:37:48 / maia

Miðvikudagur

Hæ hó   ég er á lífi eftir versló, engar áhyggjur. Bara smá leti búin að vera þessa síðustu viku. Tók mér einn dag í sumarfrí svo það þurfti að vinna upp það vinnu tap. Hins vega brunaði ég í kvöld til Akreyri City og ætla að vera hér í rólegheitum fram á laugardag. Skella mér í Hrísey á fommtudag, þar sem bróðir minn ákvað að fara með krakkaskarann sinn þangað í sumarfrí. Það verður ágætt að kíkja þangað þar sem maður hefur ekki farið þangað í langan tíma. Held að ég hafi verið ca 10 ára hnáta þegar ég fór þangað síðast.

Brunið mitt hér til Ak var nú frekar einmannalegt get nú ekki sagt annað, Corolla á ferðinni ásamt eintómum sendibílum. Svo það var bara skellt ýmsu skemmtilegu á fóninn og sungið eins hátt og mögulegt var. Svo þegar ég kom inn til að heilsa foreldrum mínum var ég nánast rám eftir allan sönginn, enda gullfallegur söngur í bílnum búinn að hljóma á ca fjóra tíma:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 15:10:21 / maia

Miðvikudagur

Nú er maður að verða búin að ná sér og kominn á gott skrið í vinnunni aftur. Þjóðhátíð á næstaleyti svo það er allt í gangi :haha:

Fer með flugi á morgun til eyja og til baka að sjálfsögðu á mánudag. Þetta verður ljómandi fínt, hver annar fær borgað til að fara á þjóðhátíð, gista á hóteli og hafa það huggó.

Verð nú samt að hafa harða hendi á strákunum svo þeir fari sér ekki að voða og við skilum einhverju almennilegu verki frá okkur. 

En þeir sem hafa áhuga á að kynnast hinum frábæra bíl Aygo betur geta hitt okkur fyrir utan veitingastaðinn Toppinn í eyjum um miðjan dag alla dagana. Verðum með flottasta hjólhýsi allra tíma á staðnum ásamt ýmsum uppákomum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 14:18:30 / maia

Körfubolta bull dog

Hélt að ég væri að ná mér svona eftir þetta vesen mitt en gærdagurinn var verstur. Fór ekki upp úr rúmminu. "Bull dog" kynnarnar urðu eins og "körfubolta Bull Dog" kynnar eða nálægt því og það var eins og ég væri að springa. Eins gott að maður á systur sem á þessi yndislegu blöð sem hægt er að skrifa upp á lyf því ég fékk í snatri sýklalyf sem ég er búin að taka í stórum skömmtum. En Sóleyin mín kom líka í heimsókn til mín og hélt mér smá félagskap í gær sem ég held að hafa læknað mig líka. Hún kom með franskar karföflur og kokteil sem var alveg magnað. Nartaði í þetta eins og kanína og var svo glöð á eftir :haha:

 En það er nokkuð ljóst samt að ég á eftir allavega þennan dag líka í rúmminu en svo er eins gott að þetta sé að verða komið nóg:whut:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 22:18:46 / maia

Bull dog

Hvernig er að vera "Bull dog"????? 

Ég verð nú að viðurkenna að það hefur lítið hvarlað að mér að hugsa um hvernig er að vera svona "Bull dog", fyrr en í dag. Eftir þessa yndisleg aðgerð mína er ég orðin svo bólgin frá því að ég vaknaði í morgun að ég þarf undirstöðu fyrir kynnarnar á mér 8| Ég ligg upp í sófa og þarf að halda undir kynnarnar á mér þar sem þær eru orðnar svol..... ´stærri en vanalega.

Ááááááttttsssssss.  Það er vont að vera "Bull dog".   skæl :S


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 13:35:41 / maia

Andlitsskönnun

He he  fann mér e-ð til að gera. Datt inn á þessa síðu í gegn um mbl.is og er þetta fín dægrarstitting.  Farið inn á þessa síðu hér . Þegar þið eruð komin þangað inn þá getið þið sett andlitsmyndir af ykkur eða einhverjum og látið skanna við 3200 andlit af frægu fólki.

Ég skellti tveim myndum af mér og annari lýktist ég Scarlett Johansson en hinni þá var ég eins og brjálaða konan í Melrose og sú sama og leikur í Aðþrengdum eiginkonum, Marcia Cross. 

Þetta er þræl skemmtilegt afþreyingarefni þegar maður hefur jafn mikið að gera og ég þessa dagana.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 09:54:23 / maia

Veikindi

Verður maður ekki að horfa á allar björtu hliðarnar í þeim aðstæðum sem maður er hverju sinni?

Í gær fékk ég að vera í DVD maraþoni og horfði á 24 í dag verða breyttar áherslur og verður stefnan tekin á "Sex and the City".  


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20