Maia

Maia

12.12.2006 15:12:27 / maia

Jóla hvað

Stekkjastaur kom fyrstur, 
stinnur eins og tré. 
Hann laumaðist í fjárhúsin 
og lék á bóndans fé. 

Hann vildi sjúga ærnar, 
-þá varð þeim ekki um sel, 
því greyið hafði staurfætur, 
-það gekk nú ekki vel. 

Giljagaur var annar, 
með gráa hausinn sinn. 
-Hann skreið ofan úr gili 
og skaust í fjósið inn. 

Hann faldi sig í básunum 
og froðunni stal, 
meðan fjósakonan átti 
við fjósamanninn tal. 

Stúfur hét sá þriðji, 
stubburinn sá. 
Hann krækti sér í pönnu, 
þegar kostur var á. 

Hann hljóp með hana í burtu 
og hirti agnirnar, 
sem brunnu stundum fastar 
við barminn hér og þar. 

Sá fjórði, Þvörusleikir
var fjarskalega mjór. 
Og ósköp varð hann glaður, 
þegar eldabuskan fór. 

Þá þaut hann eins og elding 
og þvöruna greip, 
og hélt með báðum höndum, 
því hún var stundum sleip. 

Sá fimmti Pottaskefill
var skrítið kuldastrá. 
-Þegar börnin fengu skófir 
hann barði dyrnar á. 

Þau ruku’upp, til að gá að 
hvort gestur væri á ferð. 
Þá flýtti’ ann sér að pottinum 
og fékk sér góðan verð. 

Sá sjötti Askasleikir
var alveg dæmalaus.- 
Hann fram undan rúmunum 
rak sinn ljóta haus. 

Þegar fólkið setti askana 
fyrir kött og hund, 
hann slunginn var að ná þeim 
og sleikja á ýmsa lund.

Sjöundi var Hurðaskellir
-sá var nokkuð klúr, 
ef fólkið vildi í rökkrinu 
fá sér vænan dúr. 

Hann var ekki sérlega 
hnugginn yfir því, 
þó harkalega marraði 
hjörunum í. 

Skyrjarmur, sá áttundi, 
var skelfilegt naut. 
Hann hlemminn o’n af sánum 
með hnefanum braut. 

Svo hámaði hann í sig 
og yfir matnum gein, 
uns stóð hann á blístri 
og stundi og hrein. 

Níundi var Bjúgnakrækir
brögðóttur og snar. 
Hann hentist upp í rjáfrin 
og hnuplaði þar. 

Á eldhúsbita sat hann 
í sóti og reyk 
og át þar hangið bjúga, 
sem engan sveik. 

Tíundi var Gluggagægir
grályndur mann, 
sem laumaðist á skjáinn 
og leit inn um hann. 

Ef eitthvað var þar inni 
álitlegt að sjá, 
hann oftast nær seinna 
í það reyndi að ná. 

Ellefti var Gáttaþefur 
-aldrei fékk sá kvef, 
og hafði þó svo hlálegt 
og heljarstórt nef. 

Hann ilm af laufabrauði 
upp á heiðar fann, 
og léttur, eins og reykur, 
á lyktina rann. 

Ketkrókur, sá tólfti, 
kunni á ýmsu lag.- 
Hann þrammaði í sveitina 
á Þorláksmessudag. 

Hann krækti sér í tutlu, 
þegar kostur var á. 
En stundum reyndist stuttur 
stauturinn hans þá. 

Þrettándi var Kertasníkir
-þá var tíðin köld, 
ef ekki kom hann síðastur 
á aðfangadagskvöld. 

Hann elti litlu börnin, 
sem brostu glöð og fín, 
og trítluðu um bæinn 
með tólgarkertin sín. 

Villingur skrifaði
Og hver höfðar best til þín ? hehe
maia skrifaði
ekki spurning en það er ketkrókur :)
Villingur skrifaði
He he hjá kemur ekki á óvart, enda gæða sveinn þar á ferð, var samt að skjóta á Gluggagægir bara fyrir þig en kannski seinna. hehehe
Villingur 2 skrifaði
hæ ég skal vera gluggagæir
Villingur skrifaði
Þetta er lélegt hjá þeim sem er að stæla mig, ekki vera frumlegur....
maia skrifaði
Villingar 1 og 2 spurning um bara að láta vita hverjir þið eruð. Annars fáið þið hvorki að vera gluggagægjar né annað :)
Villingur.... no 1... skrifaði
He he við vitum hver þú ert og sjáum þig oft á dag....
Villingur.... no 1... skrifaði
Á ekki að fara að koma með nýja færslu á nýjur ári...
maia skrifaði
Villingar farið að selja bíla
Villingur.... no 1... skrifaði
Gerum ekkert annað....
Villingur.... no 1... skrifaði
Hvernig væri nú að fara að koma með nýja færslu, og mæta aftur í hvítu buxunum... ehehheeh

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.