Jæja þetta var alls ekki svo slæmt, komin á lappir eftir slæman dag
í gær

Skellti mér í vinnuna og náði að pranga einum bíl inn á
kúnna, deginum bjargað þar

alltaf gott að ná því. Skellti mér svo
í afmælisveislu hjá Auði, fékk þar ljómandi kökur og kræsingar, fór
þrjár ferðir og fekk mér þrjár tegundir á diskinn í einu svo það má
næstum því telja þetta níu ferðir

GOTT GOTT. Þegar ég var
búin að sitja þarna og háma í, lagðist ég á meltinguna og í þeirri
andrá byrjaði leikurinn og hvað hann var nú skemmtilegur, að sjá
mína menn bursta FRAM æææææææ ég vorkendi þeim nú samt smá í
restina, sárir voru þeir Frammarar. En við harðmæltu að norðan
vorum gul og glöð.

Eftir þetta frétti ég að dulafulli
maðurinn hennar Auðar ætlaði nú að láta sjá sig, ákvað ég að sitja
sem föstust. Keflavíkingurinn kom að lokum og þetta var bara hin
efnilegasti maður sem frænka mín er að slá sér upp með. Hann fær
mitt atkvæði. Kv maia