Útlitið er ekki
gott. Á flug til Noregs á morgun kl: 7 og var að hlusta á
veðurfréttir þar sem er verið að spá versta veðri hér í nær 15
ár og akkurat hér við Faxaflóann á veðrið að standa í hámarki á
morgun milli 6-7!!!!!
Svo það er
spurning hvort dagurinn verði frábær á morgun og maður mun þurfa að
hanga á flugvellinum í einhvern tíma. Vona svo
sannalega ekki.
En hlakka nú smá til að koma aftur til Norge. Hef ekki
komið þangað síðan ég flutti þaðan aftur heim á klakkan og eru það
um 10 ár. Maður hefur nú verið að hugsa smá á norskunni en gengur
það nú ekki svo vel. Nánast búinn að tapa öllu sem maður lærði. Fæ
mér bara nokkra bjóra fyrir fundinn með þeim í Toyota og þá kannski
þori ég að bulla e-ð á norskunni.
P.s Vona líka að ég lendi ekki í sama klandri og Anna
Lilja mín 