Maia

Maia

24.04.2006 17:59:35 / maia

Mánudagur

Það hefur gengið á ýmsu síðustu daga, búin að vera á hótel mömmu nú í rúma viku og var það æði. Kem svo í tvo daga í vinnu og hendist svo til Brussel að vinna, svo þessi vika verður líka e-ð hálf skrítin. En í dag fékk ég myndir frá Árshátíðinni okkar í Toyota og varð ég að skella tveim myndum inn.

Sætur saman þessi vinnuhópur :haha: (Jón Óskar, Ég, Sigþór, Jóna og Þóra)

Svo varð maður að taka þátt í skemmtiatriðunum, þetta er flottasta þerna allra tíma 8| (Bjarni Freyr, Ég og Kalli kroppur)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 13:16:13 / maia

Miðvikudagur

oooohohoho   ég elska vinnuna mína   tralla ralla la

Ég fékk páska egg frá Nóa Siríus no:6 sem ég ættla sko svo mikið að borða í kvöld með ískaldri mjólk upp í sófa hjá mömmu og pabba.

Veit samt að það verður erfitt að halda þeim frá egginu, en ætli það sé ekki í lagi að þau fái e-ð smá þar sem þau eru alltaf að bjarga mér 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 10:58:41 / maia

Föstudagur

Ég skellti mér í bíó í gær með starfsfélögunum og var ætlunin að fara á Big Mama´s House en því miður var konan í miðasölunni ekki meira vakandi en það að hún prentaði út tíu stikki á Ice Age. Svo löbbuðum við upp og litum á miðann og sáum að myndin var í sal 4. Allt í góðu með það nema við föttum ekkert fyrr en myndin er að byrja. Fyrst við vorum búin að koma okkur fyrir var ákveðið að sitja um kyrrt og horfa bara á þessa mynd. Ekki sé ég eftir því. Hún er hrein snilld. Ég hló svo mikið að ég átti í erfiðlekum með að halda í mér fram að hléi. Ég mæli allavega með þessari ef þið ætlið í bíó.

Þetta verður rólegur dagur í vinnunni í dag. Enda ljómandi þar sem það er komin föstudagur. Ég kom í vinnuna rétt fyrir 10 og fer svo út að borða á Holtinu í hádeginu í boði póstsinns. Ekki slæmt. Og það besta við þetta er að þeir sögðu að við fengjum 5000 kr inneignarnótu í Kringlunna einnig. Ví mér hlakkar til að eyða henni. Á að öllum líkindum ekki í vandræðum með það. Svo upp úr 13:30 erum við stelpurnar í Toyota að fara á Sólheima á sjálfstyrkingarnámskeið. Verðum þar þangað til á morgun. Við munum horfa á Idol-ið með íbúunum á Sólheimum og verður það sennilega mjög gaman. Komum aftur í bæinn seinniparinn á morgun.

En þangað til þá segi ég bara bless..........


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 18:41:22 / maia

Miðvikudagur

Ég ætla að leggja til að gefnar verði út orðabækur kynjanna. Það er nokkuð ljóst að kynin tala hreinlega ekki sama tungumálið. Stundum er þetta svo óljóst að ekki er hægt að líkja þessu saman og á endanum kemur maður bara út sem asnalegur. Það er sama hvað maður reynir að gefa í skin hvað maður vill en það virðist ekki komast til skila. Að sjálfsögðu á endanum springur maður og kemur bara út sem asni. 8|  Ég veit ekki með ykkur en þetta gen vantar í það minnsta í mig. Ef þið vitið um stað sem hægt er að kaupa það er það einnig vel þegið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 14:39:48 / maia

Mánudagur

Ekki frásögu færandi að ég hafi verið að lesa moggann nema hvað að ég renndi að sjálfsögðu yfir slúðrið. Þar er verið að tala um fæðingu Tom Cruise og Katie Holmes. Maðurinn hefur skráð sig í Vísindakirkjuna og má því Katie ekki gefa frá sér múkk á meðan á fæðingunni stendur. Hvurslags vitleysa er eiginlega í gangi. Hvaða maður - karl maður - getur bannað konu að láta í sér heyra eftir 9 mánuða göngu og svo að unga út þessum krakka í lokinn. Ég myndi vilja sá einhvern karl mann ganga í gegnum þessa athöfn. Ekki það að ég sé einhver sérfræðingur í því hvernig þetta fer fram þar sem ég hef enn ekki látið til skara skríða, en ég er þess fullviss að enginn karlmaður gengi heill til skógar eftir þetta. Því skapaði Guð konuna til að sjá um erfiðu verkin.

Annað mál sem er mér ofarlega í huga úr síðustu viku er að ég fór á fasteignasöluna. Hringt var í mig deginum áður til að gefa mér tíma. Jú það var svo sum ágætt. Restin af allri þessari kaup upplifun var hundleiðinleg. Ég man bara þegar ég var að byrja að skoða íbúðir þá varð maður gjörsamlega að snúa upp á alla sölumenn fasteignasala til að fá hreinlega að skoða íbúðir yfir höfuð. Nema það gekk eftir hjá mér á endanum og festi ég kaup á íbúð í gegnum fasteignasöluna Hraunhamar í Hafnarfirði. Ég held að ég hafi ekki verið fyrir meiri vonbrygðum áður í viðskiptum. Maður er að kaupa það dýrasta sennilega í lífinu og vá hvað þetta var allt leiðinlegt. Ég er í bílabransanum og þar erum við að leggja okkur fram við að veita framúrskarandi þjónustu og gera viðskiptavininn að aðalhlutverki. En nei, þannig var nú þessu ekki háttað hjá þessari blessuðu fasteignasölu. Þegar ég mætti til að skrifa undir var mér tjáð að það hefði orðið mistök og ég þurfti að punga út 60.000 kalli, einn tveir og tíu, plús þessi 580.000 sem ég var mætt með. Ég hefði nú kosið að mér hefði verið tjáð þetta í símanum deginum áður og þá hefði maður getað gengið frá þessu  þá. Plús það að sá sem sá um þetta allt var allur hin leiðinlegasti í alla staði. Það er ekki verið að gera manni þetta auðvelt fyrir eða gera þetta að upplifun svona þegar maður er búin að kaupa sína stærstu fjárfestingu, nei við skulum bara vera leiðinleg og grumpí.:klikk:

Kveðja til Fasteignasölunnar Hraunhamar í Hafnafirði


» 4 hafa sagt sína skoðun