Maia

Maia

29.07.2006 14:18:30 / maia

Körfubolta bull dog

Hélt að ég væri að ná mér svona eftir þetta vesen mitt en gærdagurinn var verstur. Fór ekki upp úr rúmminu. "Bull dog" kynnarnar urðu eins og "körfubolta Bull Dog" kynnar eða nálægt því og það var eins og ég væri að springa. Eins gott að maður á systur sem á þessi yndislegu blöð sem hægt er að skrifa upp á lyf því ég fékk í snatri sýklalyf sem ég er búin að taka í stórum skömmtum. En Sóleyin mín kom líka í heimsókn til mín og hélt mér smá félagskap í gær sem ég held að hafa læknað mig líka. Hún kom með franskar karföflur og kokteil sem var alveg magnað. Nartaði í þetta eins og kanína og var svo glöð á eftir :haha:

 En það er nokkuð ljóst samt að ég á eftir allavega þennan dag líka í rúmminu en svo er eins gott að þetta sé að verða komið nóg:whut:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 22:18:46 / maia

Bull dog

Hvernig er að vera "Bull dog"????? 

Ég verð nú að viðurkenna að það hefur lítið hvarlað að mér að hugsa um hvernig er að vera svona "Bull dog", fyrr en í dag. Eftir þessa yndisleg aðgerð mína er ég orðin svo bólgin frá því að ég vaknaði í morgun að ég þarf undirstöðu fyrir kynnarnar á mér 8| Ég ligg upp í sófa og þarf að halda undir kynnarnar á mér þar sem þær eru orðnar svol..... ´stærri en vanalega.

Ááááááttttsssssss.  Það er vont að vera "Bull dog".   skæl :S


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 13:35:41 / maia

Andlitsskönnun

He he  fann mér e-ð til að gera. Datt inn á þessa síðu í gegn um mbl.is og er þetta fín dægrarstitting.  Farið inn á þessa síðu hér . Þegar þið eruð komin þangað inn þá getið þið sett andlitsmyndir af ykkur eða einhverjum og látið skanna við 3200 andlit af frægu fólki.

Ég skellti tveim myndum af mér og annari lýktist ég Scarlett Johansson en hinni þá var ég eins og brjálaða konan í Melrose og sú sama og leikur í Aðþrengdum eiginkonum, Marcia Cross. 

Þetta er þræl skemmtilegt afþreyingarefni þegar maður hefur jafn mikið að gera og ég þessa dagana.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 09:54:23 / maia

Veikindi

Verður maður ekki að horfa á allar björtu hliðarnar í þeim aðstæðum sem maður er hverju sinni?

Í gær fékk ég að vera í DVD maraþoni og horfði á 24 í dag verða breyttar áherslur og verður stefnan tekin á "Sex and the City".  


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 20:32:02 / maia

28 ára

Þegar ég vissi að ég væri að verða 28 ára var allt annað sem mér kveið fyrir en þeir dagar sem ég hef átt núna síðan á afmælisdaginn.

Þeir hafa þvi miður verið allt annað en skemmtilegir. Mikil neysla verkjalyfja, enginn svefn, lítið borðað, svitaköst, gubba, niðurgangur........... hvar á ég að hætta.

Ég verð nú bara að viðurkenna að mér er farið að hlakka til að verða 29 ára og vona bara að það byrji á betri veg. 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 12:25:30 / maia

Framhald af tannvanda

Jæja elskurnar, nú bið ég ykkur um alla mína samúð. Ég hringdi í tannsa sem ég hitti á gólvellinum á föstudaginn í morgun og sagðist hann geta litið á mig áður en hann færi í frí. Svo ég skelli mér til hans og sendir hann mig í myndatöku en leiddi það ekki til neins annars en ég er fjórum endajöxlum á einu bretti fátækari. Ástæðan var að þeir ýttu svo á taugar í kjálkanum sem leiddi til þessa sársauka sem ég er búin að glíma við síðan á afmælisdaginn minn.

Nú verða næstu dagar sársauki og mikið sjónvapsgláp.  Elskuleg systir mín kom eins og elding með helling af 24 og öðru gummsi á DVD svo nú er bara að reyna að slappa af í sársaukanum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 23:20:24 / maia

Tannvandi

Ekkert að draga úr mínum tann vanda. Nú er komin rúm vika síðan allt fór í helvíti í kjaftinum á mér og það eina sem "virkar" er að dópa sig upp. Enginn svefn, lítið étið og í gær átti ég stórkostlegan rúnt á klósett laugavegarinns. Heimsótti nokkur góð þar til að skila hádegismatnum 8| Frábært ástand á stúlkunni.

Dagurinn í dag var samt ágætur. Lexus Cup var haldið að vanda og læt ég mig ekki vanta þar. Ég er nú ekki enn farin að keppa en ég fæ alltaf þessa frábæru stöðu að aðstoða við verðlaunaafhendingu. Mitt hlutverk er að kissa alla viningshafana til hamingju. Þeir eru nú misjafnir, margir gamlir, miðaldra menn :S en í dag var nú einn sætur sem ég fékk að smella einum kossi á ;) Stóð hann sig með príði enda ekki við öðru að búast. Kominn alla leið úr sveitinni.

En það fyndna við þetta fína gólfmót að ég fann nýjan kjálkaskurðlækni og að sjáfsögðu lét ég hann ekki sleppa fyrr en búið var að plata hann til í það minnsta að kíkja upp í kjaftinn á mér á mánudaginn og ætlar hann þá að ath. hvað hann getur gert fyrir mig. Ef það gengur vel þá þarf ég ekki að bíða fram að mánaðarmótum til að fá viðtal við þann kjálkaskurðlækni sem ég var búin að panta tíma hjá. Því ykkur að segja verð ég gengin af göflunum ef ég þarf að lifa á þessu dópi og sofa ekkert í marga daga í viðbót. Allavega þyrfti að loka mig inni þar sem þetta er allveg farið að segja til sín hvað skapið á mér varðar. :klikk:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 13:14:40 / maia

NASA sálin og AYGO

Er þetta ekki flottasta bílaauglýsing sem þú hefur séð?

Ég og Hulda í góðum gír á Sálinni á Nasa


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 18:00:24 / maia

Endajaxl

Það var á þennan blessaða afmælisdag sem maður varð fullorðin loksins. Dagurinn var ekki sá besti. Ég lá upp í sófa allan daginn eftir að ég kom heim úr vinnunni að drepast í kjaftinum. Hélt fyrst að ég hefði bara tekið aðeins of stórt upp í mig, hehe nei grín. Eftir að hafa ekki dottað alla nóttina pantaði ég tíma hjá tannsanum mínum sem tók mynd af þessu fyrir mig. Í ljós kom að stelpan er loksins að fá endajaxlana sína upp. Nema það er bara ekkert pláss í þessum litla munni svo þeir eru að gera usla í kjálkabeininu. Ekki gott. Sem betur fer á maður systur sem á svona frábær bréf sem kallast lyfseðill og nú poppa ég Parkodin forte og Íbúfen á fullu. Fékk ekki tíma hjá kjálkaskurðlækni fyrr en eftir hálfan mánuð og þá fær maður líka bara að koma í viðtal fyrst. Svo guð má vita hvenær hann ætlar að fjarlægja þessa aðskotahluti. Þið sem umgangist mig næstu daga, bendi ykkur á að fara varlega þar sem skapið er ekki upp á sitt besta þegar svefninn er ekki mikill.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 16:17:05 / maia

Þriðjudagur

Tveir dagar og 28 ára :cry: Ég ætla að viðurkenna það að þetta tekur á taugarnar. Maður hefur átt það til að taka til örþrifaráða síðustu daga til að sporna við þessum aldri en svo virðist sem ekkert gangi. GSM símar ættu að vera bannaðir 8|,  Maður eldist og ræður hreinlega ekkert við það. Það er samt nokkuð ljóst líka að maður vitskast ekki með árunum.

Ég ætla að reyna að horfa á björtu hliðarnar.............. sem eru ..................................

...........................................................................8|


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 10:11:45 / maia

Böl kvöl

Fór í gólf í gær í brjálaðri rigningu en það gekk ekki betur en svo að kjáninn náði að slasa sig í gólfi. Hvernig er það hægt???  Þetta á að vera sport fyrir gamlingja og er ég að æfa mig fyrir elliárin. Ég átti þessa fínu sveiflu og var á uppleið þegar bölfað hnéið ákvað að gefa sig og small í klessu. Miða við fyrri reynslu, sem er orðin töluverð, er það liðþófinn sem er e-ð að stríða mér. En þetta er nú ekki svo stórvægilegt að ég vona að þetta jafni sig á næstu dögum. Nú verður samt lítið æft fyrir maraþonið á næstunni. Verðum að sjá hvernig hnéið braggast.

Annars verð ég nú að hlægja aðeins af þeim leikjum sem ég er búin að fylgjast með á HM nú nýlega. Hvað er málið með þennan karlpeninng!!!!!!!!!!  Ekki grenjar hann þegar e-ð mikið bjátar á en þegar hann tapar einum tuðruleik liggja þeir flestir í grasinu með ekka :cry:


» 0 hafa sagt sína skoðun